
Þjarkar fyrir kröfuharða
Þjarkar eru sjálfvirk tæki sem aðstoða starfsmenn við framkvæmd þrifa. Þeir geta meðal annars ryksugað og skúrað stóran gólfflöt með mikilli nákvæmni og samræmdum vinnubrögðum.
Þjarkar geta unnið sjálfstætt við afmörkuð verkefni, fylgt fyrirfram skilgreindum leiðum og skilað stöðugum árangri.
Með notkun þeirra má draga úr endurteknum og líkamlega krefjandi verkum, auka afköst og gefa starfsmönnum meiri tíma til annarra verkefna.
Allir þjarkar Dictum eru tengdir miðlægri stjórnstöð og undir eftirliti allan sólarhringinn.
Stjórnstöð Dictum er útbúin fullkomnu varnarkerfi sem er vaktað allan sólarhringinn. Þú getur treyst þjörkunum okkar.






