Heildarþjónusta fyrir húsfélög

Stigagangurinn tekur á móti flest öllum þeim sem eiga leið um sameignina, einnig flest öllum óhreinindum, sandi, salti og annarri drullu. Dictum Ræsting sér um að óhreinindin komi sér aftur út, enda eru þau ekki velkomin. Við tökum okkar tíma í verkið, eru ekki í kappi við tímann. Það tryggir langtímasamstarf við okkar viðskiptavini.

Heildarþjónusta Dictum er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar þar sem saman fara gæði, þjónusta og hagstætt verð. Við útbúum vandaðar þrifaáætlanir og við förum eftir þeim.

Við bjóðum upp á eftirfarandi þjónustu, bæði í fastri áskrift og sem stök þrif:

  • Vönduð þrif á stigagangi

  • Djúphreinsun á sameignarteppum

  • Sorptunnuþrif

  • Sorptunnuskipti

  • Flísa- og fúguhreinsun

  • Gluggaþvott

  • Háþrýstiþvott

  • Bónvinnu

  • Mottuleiga

Heildarþjónusta Dictum er hagstæð lausn fyrir húsfélög. Vertu með í hópi ánægðra viðskiptavina í hreinu umhverfi.

© 2022 Dictum Ræsting ehf. Allur réttur áskilinn.